Skilmálar infrared áskirtarsamnings

1. Aðgangur

Sportsól veitir áskrifanda aðgang að Infrared-korti sem áskrifandi er greiðandi að hverju sinni.
Áskriftin gildir eingöngu fyrir Infrared bekki og ekki fyrir hefðbundna ljósabekki eða aðra þjónustu Sportsól.

2. Notkun

Sportsól leigir áskrifanda aðgang að Infrared bekkjum á meðan gildur samningur er í gildi, miðað við eina notkun á dag, með hámarki 15 mínútur í hvert skipti.
Áskriftin er persónubundin og áskrifanda er óheimilt að selja, leigja, gefa eða á annan hátt framselja áskriftina til þriðja aðila.

3. Samningstími, verð og greiðslur

  • Mánaðargjald Infrared-áskriftar er 4.990 kr., greitt fyrirfram.
  • Áskriftin er ótímabundin með 3 mánaða uppsagnarfresti.
  • Greidd áskrift er ekki afturkræf.
  • Áskrifandi greiðir mánaðarlega umsamda fjárhæð á meðan samningur er í gildi.
  • Sportsól ehf. er heimilt að breyta mánaðargjaldi með tilkynningu á www.sportsol.is Breyting tekur þó ekki gildi innan uppsagnarfrests.

Sportsól ehf. er heimilt að kanna hvort áskrifandi sé skráður á vanskilaskrá Creditinfo (Lánstraust hf.). Sé áskrifandi á vanskilaskrá getur Sportsól ehf. rift samningi eða hafnað nýskráningu.

Áskrifandi heimilar Sportsól ehf. að óska skráningar á vanskilaskrá Creditinfo þegar vanskil hafa varað í að minnsta kosti 60 daga, að öðrum skilyrðum uppfylltum.

4. Búnaður

Sportsól ehf. er eigandi Infrared bekkjanna og ber áskrifanda að fara vel með búnaðinn og nota hann samkvæmt leiðbeiningum.

5. Vanskil og lokun áskriftar

Hætti áskrifandi að greiða áskriftargjald er Sportsól ehf. heimilt að stöðva aðgang hans að Infrared bekkjum.
Áskrifandi ber engu að síður ábyrgð á greiðslu umsaminna gjalda á meðan uppsagnarfrestur stendur, auk kostnaðar sem kann að hljótast af innheimtu.

Að loknum samningi eða uppsagnarfresti lokast áskriftin sjálfkrafa og fellur úr gildi.

6. Breytingar á áskrift

Uppsagnir skulu berast með þriggja (3) mánaða fyrirvara og skal vera sagt upp fyrir 15. þess mánaðar svo uppsögn taki gildi næstkomandi mánaðarmót. Samningur er ótímabundinn og endurnýjast sjálfkrafa hafi ekki borist skrifleg uppsögn til Sportsólar á netfangið askrift@sportsol.is.

Brjóti áskrifandi gegn skilmálum þessum er Sportsól ehf. heimilt, án fyrirvara, að stöðva aðgang að Infrared bekkjum og hefja innheimtuaðgerðir.

7. Innheimta

Innheimta áskriftargjalda fer fram af hálfu viðurkenndra innheimtuaðila, s.s. Borgunar, Inkasso eða annarra aðila sem Sportsól ehf. ákveður.

8. Aldurstakmark og skilríki

  • Aldurstakmark Infrared-áskriftar er 18 ár (fjárráða).
  • Skilríki skal sýna við hverja notkun.
  • Facebook-prófíll eða sambærileg rafræn auðkenni teljast ekki gild skilríki.

9. Bann við notkun þriðja aðila

Óheimilt er að leyfa þriðja aðila að nýta áskriftina með nokkrum hætti og ekki er heimilt að bjóða öðrum með sér á Infrared-áskrift.

10. Heilsa og öryggi

Samkvæmt ráðleggingum Geislavarna ríkisins er ekki mælt með að Infrared bekkur og hefðbundinn ljósabekkur séu notaðir sama dag, þar sem slíkt getur valdið auknu álagi á húð og húðertingu.
Notkun Infrared bekkja er ekki ráðlögð fyrir einstaklinga yngri en 18 ára.

11. Breytingar á skilmálum

Sportsól ehf. áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Breytingar skulu kynntar áskrifendum með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara á heimasíðu Sportsól.

12. Persónuvernd

Sportsól ehf. heitir áskrifanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem veittar eru í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema skylt sé samkvæmt lögum.

13. Lögsaga

Mál út af samningi þessum skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.